numereitt@numereitt.is

Um okkur

Við trúum því staðfastlega og vitum að öll getum við gert mjög margt til að auka lífsgæði okkar og heilbrigði. Lykillinn að því er að hlúa vel að líkama og sál, hvort sem það er að borða hollan mat, taka inn gæða bætiefni, eða anda að sér fersku lofti og hreyfa sig. Við vitum líka að við erum öll mannleg, sem betur fer, en oft er mikið stress og fáar stundir til að huga að sjálfum sér. 


Hvað erum við svo að gera? Við viljum gera þér auðveldara að hlúa að heilsunni þinni, með fyrsta flokks bætiefnum og vörum sem stuðla að betri líðan og heilbrigði. 


Vörumerkin okkar eru nú átta talsins og fást í flestum apótekum, stórmörkuðum og heilsuvöruverslunum.


Þín heilsa er okkar ástríða. 

TEYMIÐ

Íris Gunnarsdóttir

Eigandi og framkvæmdastjóri


Íris er með menntun í viðskiptum, markaðs og útflutningsfræðum, Íris lauk verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og vorið 2019 útskrifaðist hún með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.


Hún er frumkvöðill í eðli sínu og hefur víðtæka reynslu í viðskiptalífinu. Hún sinnti starfi innkaupastjóra bætiefna fyrir Heilsuhúsið og síðar starfi markaðsstjóra Lyfju hf. 


Hún hefur brennandi áhuga á öllu sem við kemur heilsu og hefur sjálf ávallt tekið bætiefni sér til heilsubótar.


Íris hefur komið að öllum þáttum sem máli skipta í fyrirtækjarekstri.


Netföng:

iris@avita.is

iris@numereitt.is

Sími: 8608484


Díana Íris Guðmundsdóttir

Sölustjóri og verkefnastjóri


Díana Íris er með BA í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og diplóma í verkefnastjórnun frá NTV.


Hún hefur starfað sem verslunarstjóri hjá NTC, sem markaðs- og sölufulltrúi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, flugfreyja hjá hina sáluga flugfélagi WOW Air og sem þjónustufulltrúi hjá Eignaumsjón.


Hún hefur mikinn áhuga á heilsu og hvað er hægt að gera til að láta sér líða betur. Það er henni hjartans mál að hjálpa öðru fólki að líða betur og miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra.


Díana á auðvelt með að kynnast fólki og á einstaklega auðvelt með mannleg samskipti.  Í starfi sínu sem sölustjóri mun Díana heimsækja sölustaði okkar passa uppá að allt sé til sóma.


Netfang: dianairis@numereitt.is

Sími: 8678246

Ösp Viðarsdóttir

Næringaþerapisti

Stella Þórisdóttir

Sala og dreifing

Við viljum heyra í þér!




Ef þú vilt senda okkur fyrirspurnir eða ábendingar um vörurnar okkar, þá endilega fylltu út í formið hér fyrir neðan.

Við viljum gjarnan heyra frá þér og svörum spurningum þínum við fyrsta tækifæri.


Contact Us


Fréttir

Share by: